Norden 2005, Partille 2006, Norden 2006 3 stórir í röð
27.06.2008 13:24:46 / fhingar

Nýtt svæði fyrir myndir af U-18 landsliðinu

Var að opna nýtt svæði sem eingöngu verða geymdar myndir frá U-18 landsliði Íslands.
Einnig setti ég þar nokkrar myndir frá Norden Cup 2005-2006-2007 og svo Partille 2006.

farið á  http://www.pixbox.se/hme_search.html    skrifið í gluggann til vinstri  " sverrirr "

klikkið síðan á  "sverrirr" linkinn sem kemur undir  "användaranamn "

þá koma upp þau albúm sem ég er með á mínum snærum


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 23:08:16 / fhingar

Fleiri myndir

þar sem við FH-ingar eigum nokkrar U-18 landsliðsmenn, er alltaf myndavélin við hendina.  Ég tók saman allar myndirnar sem hafa verið teknar í eina grúbbu.
þar er að finna myndir frá Ragnarsmótinu 2007, Noregsferðinni 26-29 okt 2007 og síðan en ekki síst, frá leikjunum úr Austurbergi.  Þegar spilaður var riðillinn og Island tryggði sér sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppninnar.

eru þær undir " U-90 landsliðið"   kíkið nú á þessar myndir og njótið.

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 13:28:37 / fhingar

Aðeins meira um s.l ár

henti á netið fyrir einhverjum tíma síðan syrpu um 89-90 strákana
http://www.youtube.com/watch?v=rypOBuLFNO4 

þar er einnig verðlauna afhendingin frá partille og fleira

Þið eruð ennþá snillingar

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 22:47:10 / fhingar

Veturinn 2007-08

Nú er þessu keppnistímabili lokið og var útkoman svo sem ágæt.

Vorum með bæði liðin í 1 deild og það var fyrsta takmarkið.  Yngra liðið stóð sig vel og var í flestum tilfellum að spila við stráka á eldra ári og í byrjun vetrar gekk ekki alltof vel, en smá saman fengu þeir trú á sjálfum sér og fóru að taka inn stig frá hibun ólíklegustu liðum. Enduðu þeir í 8 sæti í deildinni með 12 stig. Með smá heppni og aðeins meiri skynsemi, sérstaklega í þeim leikjum sem þeir voru yfir í lok leiks.  Þá var eins og menn ætluðu að gerast hetjur og gera 2 mörk í hverri sókn. Í staðinn glutruðu þeir unnum leik í jafntefli eða 1 marks tap.  En vonandi læra þeir af þessu og koma reynslunni ríkari inn á næsta vetri.

Eldra árið....  þetta var skrítin vetur fyrir þá.    Æfðu svo til ekkert saman og voru ekki sannfærandi.   Reyndar kom hin mikla reynsla þeirra í ljós í 8 liða úrslitum bikarsins á móti sterku liði Selfoss,  þegar þeir voru 2 mönnum færri í upphafi framlengingar.  Unnu þann kafla 2-0 og kláruðu leikinn með 4 mörkum. Urðu síðan bikarmeistarar í 4 sinn á 4 árum, frábær árangur, ekki tapað bikarleik í 4 ár. Geri aðrir betur.....

Íslandsmótið sjálf var mjög brokkgengt,  Aron spilaði ekkert með, Björn hætti að æfa í okt, en spilaði flesta leikina með strákunum og sást nokkuð greinilega undir lok vetrar  að hann hafði ekki æft um veturinn.  En saman stóðu þeir allan veturinn og enduðu í 3 sæti í deild, á eftir Selfoss og Haukum.  Í vetur töpuðu þeir alls 8 leikjum, sem er meira heldur en þeir hafa tapað s.l  7 ár að öllum leikjum meðtöldum, bæði hérlendis og erlendis.  Og það er svolítið skrítið að hafa orðið vitni af því.   Ýmsar skýringar er hægt að finna fyrir því, en þær laga ekkert.  Í úrslitakeppninni voru ÍR-ingar teknir í kennslustund og mættust síðan FH-Haukar í undanúrslitum.  Mikil maraþonleikur sem fór í 2 framlengingar og sigruðu Haukar sanngjarnt 44-41.  Það skrítna við þennan leik var, þótt við hefðum ekki meira en 4-5 bolta varða í öllum leiknum, 6 viti klikkuðu, þá var það ótrúlegt að þessi leikur skildi fara  í framlengu, ekki 1 heldur 2.  Furðulegt að FH skildi vera í leiknum allan þennan tíma.  Okkar strákar spiluðu því um 3-4 sætið sem þeir höfðu aldrei gert áður.  Mættu Stjörnunni og sigruðu eftir framlengingu, þar sem Óli Guðmunds gerði sigurmarkið beint úr aukakasti eftir að leiktíma lauk.

Útkoman hjá eldra ári: Bikarmeistarar, 3 sæti í deild og 3 sæti á íslandsmóti, ágætt

Útkoma yngra árs: 8 sæti í deild og mikil reynsla í bankann, koma sterkir inn næsta vetur.

 Takk fyrir veturinn strákar.



Við strákana sem fæddir eru 1990 vil ég segja eitt.

Mig langar að þakka ykkur fyrir alla skemmtunina og frábæran tíma sem ég hef átt með ykkur öll þessi ár, bæði hérlendis og erlendis.  Þið getið verið stoltir af ykkar árangri og því orðspori ykkar sem þið hafið aflað ykkur erlendis. Þeir titlar sem þið hafið unnið s.l ár segja allt:

Íslandsmeistarar 2002-2003-2004-2005-2006-2007.  

Deildarmeistarar 2002-2003-2004-2005-2006-2007. 

Bikarmeistarar . 2005-2006-2007-2008

Partille Cup 2005  7 sæti

Partille cup 2006   1 sæti

Norden cup 2005-2006  Norðurlandameistarar 2 ár í röð

19 titlar  á 7 árum  Frábær árangur

Þið getið verið mjög stoltir yfir ykkar árangri...............................

Að lokum hef ég sett inn nokrar myndir af ykkur á myndasvæðinu.......

Eins og Raggi segir alltaf.......

ÞIÐ ERUÐ LANGFLOTTASTIR  !!!!!!!!!!!!!!!!!












» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 12:29:32 / fhingar

Nú er komið að því..

Jæja, nú er komið að lokasprettinum í íslandsmótinu hjá unglingaflokknum og verður leikur í 8 liða úrslitum á miðvikud 23 apríl.  Þessi vetur er búinn að vera svolítið skrítinn fyrir strákana, því þeir hafa tapað 6 leikjum í vetur.  Það eru fleiri leikir en þeir hafa tapað s.l. 6 ár, og þá eru taldir með leikir hérlendis og erlendis.  Það eru nú vissar ástæður fyrir þessum óförum, m.a. Aron hefur ekkert spilað, nema í bikar, Björn ekkert æft þó að hann hafi spilað með.  Og síðan hafa strákarnir ekkert æft saman með þjálfaranum, því þeir eru flestir að æfa með mfl.    En ef ég þekki þessa stráka rétt, þá munu þeir koma sterkir í úrslitakeppnina og vonandi draga heim hinn stóra titilinn. 

Jæja strákar, nú er að koma sér í gírinn og taka þennan titil , þó örugglega verður það erfiðara núna en undanfarinn ár.

KOMA SVO !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Svona myndir viljum við alltaf fá í vetrarlok:d:d:d


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 09:12:56 / fhingar

FH-Selfoss2

Í gær mættust FH-Selfoss2.  Í snarheitum, FH tók leikinn í sínar hendur strax og sigraði að lokum með 36-30.  Eftir að munurinn hafði verið frá 6-9 mörkum allan seinni hálfleikinn. Myndir komnar



» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 15:46:37 / fhingar

Stjörnumótið dagur 2

Jæja, þá eru komnar myndir frá degi 2.
Þar sem Guðjón sá um myndatökuna þennan dag urðu þær fleiri en venjulega.
Í þetta skiptið eru þær 386 talsins, þótt ég hafi hent út u.þ.b. 50-60 myndum.
Eru þetta allavegana myndir





» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 21:11:08 / fhingar

Stjörnumótið dagur 2

Miðvik 19 mars var dagur 2 á þessu móti og mætti FH þá Sjörnunni í fyrri leik sínum þennan dag.  Var það úrslitaleikur um hvort það yrði FH eða Stjarnan sem myndi mæta Aab í úrslitaleik.  Fór það svo að FH vann og smætti því Aab síðar um daginn.  Þar voru Aab mun stekari og ákveðnari og sigruðu að lokum með  6 marka mun.  Að venju voru teknar myndir, en vegna þess að það voru teknar tæplega 400 myndir þennan dag, verð ég að bíða með að setja þær á netið þar til eftir páska.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 09:22:59 / fhingar

Æfingamót í Garðabæ 18-19 mar

Dagana 18-19 mars er lítið hraðmót í Garðabæ þar sem 2 lið frá Danmörku eru meðal þátttakenda.  Annað þessarar liða Aab frá Álaborg er góðkunningjar FH frá Norden cup 2006.  FH og Aab mættust einmitt þá í undanúrslitum, þar sem FH fór með sigur 28-22 minnir mig.  Í gær mættust þessi lið einnig í Garðabæ í jöfnum og spennandi leik þar sem Aab sigraði að lokum 28-27 og skoruðu þeir sigurmarkið 2 sek fyrir leikslok.  Einnig mætti FH hinu danska liðinu og sigraði nokkuð örugglega með 6-8 mörkum.  Í dag mætast FH og Stjarnan í hreinum úrslitaleik um hvort liðið fer í úrslitaleikinn sem verður kl 16:00 í Mýrinni.  Vegna forfalla  kemst FH ekki með sitt sterkasta lið í dag, en auðvitað stefna strákarnir á sigur. 
Setti inn 150 myndir frá deginum í gær vinstra megin undir "íslandsmót 2007-08"
Fleiri myndir á morgun frá deginum í dag.







» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 09:53:59 / fhingar

ÍR rúllað upp

Í gær komu ÍR í krikann og mættu bikarmeisturum FH.  Ekki veit ég hvort ÍR höfðu gert sér vonir um að ná í stig, en ef svo var, þá var það kæft á fyrstu mínutum leiksins.  FH komst í 5-0 , 10-2 og þannig var þa allan leikinn.  ÍR sá aldrei til sólar í þessum leik og sigraði FH með 34-22. Mjög svo afgerandi sigur.  Enga varamenn á bekknum þar sem Dóri má ekki spila handbolta í 7-10 daga, nema 1 markmann og stóð hann sig vel síðustu 15 min af leiknum.  Erfitt er að taka út einhvern leikmann FH í þessum leik.  EN þeir sýndu það að þeir höfðu mjög gaman af þessu, brostu og skemmtu sér allan leikinn. 
Í þessum leik voru alvöru dómarar, með DÓMARARÉTTINDI sem dæmdu og fórst það vel úr hendi.  Ekki er hægt að kenna þeim um ófarir ÍR-inga.  Reyndar vantaði 2 sterka pósta hjá þeim, en þeir hefðu ekki gert útslagið.
Flottur leikur FH-ingar og svona viljum við sjá ykkur spila, hafa gaman, skemmta ykkur og þeim sem horfa á.
Myndir vinstra megin á síðunni



» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 11:36:43 / fhingar

Bikarmeistarar 2008 !!!!!!!!

En á ný, í fjórða skiptið á 4 árum urðu strákarnir bikarmeistarar.  Frábær árangur hjá þeim.
Henti inn link á myndir frá leiknum.  Vinstra megin á síðan


Ekki er hægt annað en að vera stoltur yfir ykkar frammistöðu og því áliti sem fremsti dómari landsins hefur á ykkur strákar.  kíkið á þennan link
http://hsi-domarnefnd.blog.is/blog/hsi-domarnefnd/?nc=1#entry-462996 

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 09:44:22 / fhingar

Í úrslit bikars fjórða árið í röð........

Enn á ný mæta strákarnir í Höllina í úrslitum bikarsins, eftir sigur á Fram með 9 mörkum.
Þokkalegur leikur, ekki meira en það. Sigur samt sem áður og takmarkinu náð.
Krissi í bikarúrslitaleik í fyrsta skiptið.  Og Guðfinnur var í úrslitum þarna fyrir 17 árum og gaman fyrir hann að koma þarna aftur.
Úrslitaleikurinn fer fram 2 mars í Laugardalshöll, tímasetning er eitthað á reiki, þar sem möguleiki er á að unglingafl og 2 fl skipti á leiktíma.
nánar síðar



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 14:16:11 / fhingar

Undanúrslit bikars !!!!!!!!!1

það var kominn tími til að fá að vita hverjum við mætum í undanúrslitum bikarsins.
Það verða Framarar og verður leikurinn í Safamýrinni.  Tímasetning er ekki kominn enn, en það verður Mjög fljótlega

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 10:32:59 / fhingar

Nýtt á síðunni og nýtt nafn

það var verið að uppfæra bloggsvæðið og komu inn nýir fídusar.
þar sem gamla nafnið á síðunni passar ekki í nýja kerfið, þurfti ég að skipta um nafn.
nýja nafnið er http://ungflkkfh.blogcentral.is/ 

Bætti ég inn ýmsum nýjum fídusum og meðal annars lista frá Tónlist.is
Einnig er komin könnun og búin að færa ýmislegt frá vinstri til hægri.  Einnig er komin klukka, svo fólk gleymi sér ekki á síðunni. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 09:44:20 / fhingar

Bikarleikur í kvöld

Jæja strákar, nú þegar deildartitillinn er að hverfa úr augsýn, þá er bara snúa sér að stærri titlum.  8 liða úrslit bikars og leikur við Aftureldingu í kvöld kl 21:00.   Þessi leikur er skrefi nær úrslitaleiknum í Höllinni og það viljið þið örugglega upplifa einu sinni enn.

Mæting í krikann kl 19:30 og þar mun vera farið yfir stöðuna og lagðar línurnar

MUNA, stundvísi er mikilvæg í kvöld


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 31
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  33  Alls: 163685